Hvert lítið skref...

Uppskriftir

Ég er nú enginn meistarakokkur, en ég hef gaman af því að "leika" leika mér í eldhúsinu og útbúa nýja hluti.  Margt er nú svosem ekkert merkilegt eða nein stóreldamennska eða uppfinning að baki en þó eitthvað sem virkar vel fyrir mig :)

Karry fiskur með eplum og lauk

100 gr ýsa

1 tsk olía

Laukur að vild

1/4 hluti epli (má þó vera meira)

karry

salt

pipar

Laukurinn skorinn smátt og svissaður á pönnu í olíunni. Ýsunni bætt út í og eldaður. Kryddað með karryinu, salti og pipar.  Eplið skorið í litla teninga og bætt út á pönnunna og mýkt.

Ef vill þá má setja soyasósu út í, eða þá útbúa karrysósu úr 10 gr af létt mayonesi og hræra saman við blönduna þegar hún er komin á diskinn.

------------------------------

Fiskisalat/Kjúklingasalat

50-60 gr soðinn fiskur/elduð kjúklingabringa

1 egg

15 gr létt mayones

soyasósa

Herbamare

Jafnvel eitthvað aukakrydd ef vill

ótrúlega gott salat ofan á ristað brauð :)

------------------------------------------------

Svínasnitsel með grænmeti, tacosósu og sýrðum rjóma

Svínasnitsel

paprika

sveppir

gulrætur

spergilkál

blómkál

Tacosósa

sýrður rjómi

krydd

300 gr af grænmeti skorið niður í þunnar sneiðar/bita og mýkt á pönnu í örlitlu vatni og soyasósu og ca 1 msk tacosósu.

Svínasnitselið penslað með tacosósu og grillað í george forman grilli (auðvitað má annað;)

grænmetið sett fallega á disk

kjötið sett til hliðar á diskinn

tacosósa og sýrður rjómi haft með þessari máltíð

-----------------------------------------------------------

Lifur í rjómasveppasósu.

100 gr sveppir

100-120 gr lifur

Soyasósa

1 tsk olía

3/4 dl sýrður rjómi (ég nota 10% frá mjólku)

salt, pipar og töfrakryddið frá pottagöldrum (má þó vera annað krydd)

ca 1-2 dropar sætuefni

Byrja á því að skera niður sveppina, setja þá ásamt örlitlu vatni og smá soyasósu í pott og mýkja sveppina (útbúa soð)

1 tsk hveiti sett í skál og kryddað með kryddunum. Örlítið vatn og 1 tsk olía sett á pönnu, lifrinni velt upp úr hveitinu og brúnuð á pönnunni (ca 1 mínúta á hvorri hlið).  Þegar búið er að brúna lifrina þá er vatni bætt út á pönnuna auk sveppanna og soðsins og lifrin soðin í ca 3-4 mínútur. blanda restinni af hveitinu út í örlítið vatn og þykkja sósuna að vild.  Sýrðum rjóma og sætuefninu bætt út í og kryddað meira ef vill.

Með þessu hef ég soðið blandað grænmeti og 1 tsk af sykurlausri sultu (svona ef mig langar í eitthvað sætt :P)

-------------------------------------------------------------------------

Pizzu/hakksósa

1 lítill laukur

1/2 paprika

Niðursoðnir tómatar

krydd.

Allt sett í pott og soðið þar til laukurinn og paprikan eru orðin mjúk.  Sett í mixer og maukað gróflega.  Gott á pizzu, út á hakk og fl.

-----------------------------------------------------------------------------

Þetta er svosem ekki uppskrift en ég útbjó mér pizzu fyrir stuttu og hún var eitthvað á þessa leið.

Útbjó pizzadeig úr spelti (notaði mjög lítið ger (örítið lyftiduft) og lítið af matarolíu (nota botnin sem brauðskammt).

Á pizzubotninn lét ég sósuna að ofan.

Áleggið á pizzun var nóg af papriku (gul, rauð og græn), sveppir, adukibaunir, ostur (passa þó að hafa hæfilegt magn)

pizzuna bakaði ég og skar niður í sneiðar (var búin að deila niður ca hve margar 30 gr brauðsneiðum ég næði úr henni). Pakkaði hverri sneið inn og frysti.  Fæ mér einstaka sinnum svona pizzusneið með hádegismatnum.

-----------------------------------------------------------------------

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 6
Gestir í gær: 2
Samtals flettingar: 16140
Samtals gestir: 7878
Tölur uppfærðar: 13.3.2010 11:53:39

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Sólrún

Afmælisdagur:

27 febrúar

Staðsetning:

Reykjavík

Tenglar